WordPress sérkennsla
Fyrirtæki geta pantað sérkennslu og komum við þá á staðinn og förum yfir og kennum einstaklingum eða hópum innan fyrirtækisins. Markmiðið er að starfsfólk geti uppfært og viðhaldið vefsvæðum fyrirtækisins. Verð á sérkennslu er 9.700 kr. pr. klst.
Í sérkennslu er farið yfir helstu stillingar WordPress og hvernig auðveldlega má vinna með útlit og efni á vefnum.
Inntökuskilyrði
Gott er að þátttakendur hafi ágæta almenna tölvukunnáttu og hafi einhverja grunnþekkingu á WordPress kerfinu.
Markmið
Að loknu námskeiði geta þátttakendur m.a:
- Notað stjórnborð WordPress þaðan sem öllum aðgerðum í WordPress er stjórnað.
- Leitað eftir og sett upp sniðmát (Themes).
- Leitað eftir og sett upp viðbætur (Plugins).
- Bætt við smáforritum, innsláttarformum, vegakortum og fleira.
- Skipulagt vefinn með síðum, flokkum og merkingum.
- Unnið með og sett inn færslur, síður, myndir og margmiðlunarefni.
- Leitarvélabestað vefinn fyrir Google og aðrar leitarvélar.
Skipulag
Áður en leiðbeinandi mætir á staðinn og sérkennsla hefst er farið yfir hvaða atriði þarf að taka fyrir hvort sem það er að uppfæra eða stilla vefinn, læra á grunnatriðin eða fara djúpt í forritun og hönnun vefsins. Gert er ráð fyrir að þátttakendur notist við lén sem þeir eiga eða hafa umsjón með.
Kennslugögn
Með sérkennslu fylgja WordPress kennslugögn á ensku.
Leiðbeinandi
Garðar Garðarsson, sérfræðingur í Wordpress og markaðssetningu á netinu. Garðar hefur starfað við vefsmíði og vefþjónustu í 21 ár ásamt því að halda fjölmörg námskeið og fyrirlestra fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.