Tactica og Veftorg hönnuðu og settu upp nýjan snjallvef fyrir Tottenhamklúbbinn á Íslandi á vefslóðinni Spurs.is

Gamli vefurinn var keyrður í Joomla vefumsjónarkerfinu en var fluttur yfir í WordPress um leið og útlit vefsins var endurhannað frá grunni.

Innifalið voru sett upp nokkur Facebook og Twitter streymi ásamt fréttastreymi frá BBC og Skysports.

Við óskum Tottenhamklúbbnum á Íslandi til hamingju með nýja vefinn.

Sjá: http://spurs.is